24.03.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Kaitlyn Savage gengin til liðs við Þór/KA (Staðfest)

Þór/KA fær nýjan markvörð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór/KA fær nýjan markvörð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslandsmeistarar Þór/KA er búið að fá markvörð fyrir baráttuna í Pepsi-deild kvenna næsta sumar því Kaitlyn Savage er gengin til liðs við félagið og leysir stöðu Chantel Nicole Jones sem varði markið á síðustu leiktíð.
Kaitlyn Savage er 22 ára gamall markvörður og fær því það verðuga verkefni að leysa Chantel Nicole Jones af hólmi sem ákvað að reyna fyrir sér í nýju Bandarísku atvinnumannadeildinni.
Það má segja að Kaitlyn sé að stíga sín fyrstu skref í heimi atvinnumennskunnar. Á síðasta tímabili lék Kaitlyn með Ástralska liðinu Perth Glory, við ágætan orðstýr. Áður en Kaitlyn flaug á vit ævintýranna, þá stóð hún á milli stanganna hjá háskólaliði sínu Florida International University við góðan orðstýr. Háskóla liði hennar gekk ágætlega.
Hér að neðan er mynd af Kaitlyn Savage:

Heimild: Vefur Þórs