24.03.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Óskar Smári Haraldsson í Hamar (Staðfest)

Óskar Smári í búningi Hamars.

Mynd: Hamar

Óskar Smári í búningi Hamars.

Mynd: Hamar
Óskar Smári Haraldsson hefur gengið til liðs við Hamar frá Tindastóli. Óskar Smári er efnilegur framherji sem lék með Drangey í 3. deildinni í fyrra og hefur leikið vel fyrir Tindastól á undirbúningstímabilinu.
Óskar Smári bætist í hóp þeirra Atla Hjaltested, Daníels Fernandes Ólafssonar, Kristjáns Vals Sigurjónssonar, Sigurðar Kristmundssonar og Vignis Daníels Lúðvíkssonar sem einnig hafa gengið til liðs við Hamar á undanförnum dögum.
Þá er Hamar í viðræðum þessa dagana við erlenda varnarmenn, m.a. frá Serbíu og Póllandi, ásamt markvörðum frá Bandaríkjunum og Póllandi. Þá er einnig vona á frekari liðsauka leikmanna frá íslenskum liðum á næstu vikum.
Nánar verður skýrt frá leikmannamálum Hamars er fram líða stundir.