Fotbolti.net
24.03.14 - 16:30
Hafliði Breiðfjörð

Kvennalið Aftureldingar fær tvo erlenda leikmenn (Staðfest)

Theódór Sveinjónsson tók við þjálfun Aftureldingar í síðustu viku. Hann er þegar farinn að styrkja liðið en tveir erlendir leikmenn voru að ganga í raðir Mosfellinganna.

Theódór Sveinjónsson tók við þjálfun Aftureldingar í síðustu viku. Hann er þegar farinn að styrkja liðið en tveir erlendir leikmenn voru að ganga í raðir Mosfellinganna.

Canon

Mynd: Afturelding

Kvennaboltinn
Kvennalið Aftureldingar hefur samið við þær Amy Marron og Courtney Conrad um að leika með liðinu í Pepsideildinni í sumar en þær koma báðar úr bandaríska háskólaboltanum.
Amy hefur undanfarin ár leikið með háskólaliðinu St.Johns Red Storm í New York. Hún hefur alls spilað 49 leiki og skorað 4 mörk fyrir liðið en áður lék hún með Westlake menntaskólanum við góðan orðstír. St.Johns University er með öflugt knattspyrnulið en liðið náði í sextán liða úrslit í efstu deild NCAA sem er landsmeistarkeppnin í bandaríska háskólaboltanum.

Courtney kemur frá Virginia Commonwelth háskólanum í Richmond í Virginia fylki. Hún hefur leikið 43 leiki og skorað í þeim 17 mörk fyrir háskólalið VCU eftir að hafa spilað í eitt ár fyrir Jacksonville háskólann þar sem hún skoraði átta mörk á fyrsta tímibili sínu í háskólaboltanum. Courtney, sem er frá Nova Scotia var í kanadíska U20 ára landsliðsúrtakinu á sínum tíma.

Amy og Courtney eru væntanlegar til landsins með vorinu og munu án efa styrkja hóp Aftureldingar talsvert fyrir komandi tímabil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.