24.03.22 - 11:35
Elvar Geir Magnússon
Defoe leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Jermain Defoe.

Mynd: EPA

Jermain Defoe.

Mynd: EPA
Jermain Defoe, fyrrum sóknarmaður enska landsliðsins, West Ham, Tottenham og Rangers, hefur lagt skóna á hilluna 39 ára gamall.
Defoe gekk aftur í raðir Sunderland í febrúar, skoraði 304 mörk í 762 leikjum fyrir félagslið og bætti 20 mörkum í 57 leikjum fyrir enska landsliðið.

Hann lék einnig um tíma fyrir Portsmouth, Bournemouth og Toronto á 22 ára ferli sínum.
„Þetta var afskaplega erfið ákvörðun. Ég spilaði minn fyrsta aðalliðsleik sautján ára gamall 1999 og ég tel að nú sé rétti tíminn til að segja þetta gott," segir Defoe.
Defoe skoraði 162 úrvalsdeildarmörk og er níundi markahæsti í sögu deildarinnar síðan hún var stofnuð 1992-93. Þá er hann í fimmtánda sæti þegar kemur að fjölda leikja.
Margir muna líka eftir vináttu hans og Bradley Lowery sem lést 2017, sex ára gamall, eftir erfiða baráttu við veikindi. Defoe hefur verið duglegur við að sinna góðgerðarmálum.
„Ég hlakka til að eyða gæðatíma með fjölskyldu minni og vinum áður en við tekur næsti kafli á starfsferli mínum. Ég vil að lokum þakka mömmu minni, þú gafst mér bolta þegar ég var tveggja ára gamall og lést mig trúa því að draumur gæti ræst," segir Defoe.

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images