Fotbolti.net
24.04.13 - 13:53
Magnús Már Einarsson

Luis Suarez í tíu leikja bann (Staðfest)

Luis Suarez í tíu leikja bann (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Luis Suarez, framherji Liverpool, hefur verið úrskurðaður í tíu leikja bann af enska knattspyrnusambandinu.

Suarez er úrskurðaður í bann eftir að hafa bitið Branislav Ivanovic varnarmann Chelsea í leik liðanna um síðustu helgi.
Bannið þýðir að Suarez mun missa af síðustu fjórum leikjum Liverpool á þessu tímabili og sex fyrstu leikjum liðsins á næsta tímabili.

Suarez baðst afsökunar á hegðun sinni eftir leikinn á sunnudag en Liverpool sektaði framherjann fyrir athæfið.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Suarez er dæmdur í langt bann hjá enska knattspyrnusambandinu en í desember 2011 var hann dæmdur í átta leikja bann fyrir kynþáttafordóma í garð Patrice Evra.

Suarez hefur frest fram á föstudag til að áfrýja leikbanninu en Liverpool ætlar ekki að tjá sig um dóminn fyrr en félagið hefur lesið hann yfir í heild sinni.

Hver er þín skoðun á banninu? Taktu þátt í könnun á Facebook síðu Fótbolta.net
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.