24.04.22 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Gísli Eyjólfs skrifar undir hjá Breiðablik (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik er búið að staðfesta nýjan samning við Gísla Eyjólfsson sem hefur verið lykilmaður á miðjunni síðustu sex ár.
Gísli er 27 ára og á 183 keppnisleiki að baki fyrir Blika með 48 mörk skoruð.
Gísli, sem á 4 A-landsleiki að baki, leiddi Blika áfram í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra sem fór að lokum til Víkings R.
„Þetta eru frábær tíðindi fyrir Blika og verður spennandi að fylgjast með þessum öfluga leikmanni áfram í grænu treyjunni næstu árin💚" segir í færslu á Facebook síðu knattspyrnudeildar Breiðabliks.
Gísli gerir þriggja ára samning við félagið sem stefnir á að vera í toppbaráttunni næstu árin.
