„Fyrstu vikurnar hafa verið mjög góðar. Þetta er frábær hópur og allir í félaginu og á Akureyri eru frábærir. Mér líður eins og heima hjá mér þrátt fyrir að hafa verið hérna í þrjár, fjórar vikur,“ sagði Sebastian Haugland, framherji Þórs, eftir að hafa skorað sigurmarkið gegn Fram í gær.
Markið var hans fyrsta fyrir Þór en norski framherjinn var keyptur frá Hödd í Noregi í síðasta mánuði. Haugland var markahæsti leikmaður Hödd í norsku B-deildinni í fyrra og hefur alls skorað 17 mörk í 43 leikjum í norsku B-deildinni.
Markið var hans fyrsta fyrir Þór en norski framherjinn var keyptur frá Hödd í Noregi í síðasta mánuði. Haugland var markahæsti leikmaður Hödd í norsku B-deildinni í fyrra og hefur alls skorað 17 mörk í 43 leikjum í norsku B-deildinni.
Lestu um leikinn: Þór 1 - 0 Fram
Allt í einu endar maður á Akureyri
Sá norski ræddi við Fótbolta.net í gær og var spurður út í það hvernig hann endaði á Íslandi.
„Ég veit það ekki. Svona getur fótboltinn verið skemmtilegur. Ég er með öðruvísi feril en aðrir leikmenn. Ég sprakk mjög seint út. Ég hef bara spilað sem atvinnumaður síðustu tvö, þrjú ár. Þetta hefur gengið hratt fyrir sig. Hlutirnir bara gerast. Það voru aðrir möguleikar en síðan var Þór komið inn í myndina ásamt öðrum íslenskum félögum. Þetta er skemmtilegi hlutinn við fótbolta, þú veist aldrei hvert þú ferð, allt í einu endar maður á Akureyri á Íslandi.“
Ræddi við Breiðablik
Greint var frá því í síðasta mánuði að Breiðablik væri að krækja í Haugland en skyndilega var hann mættur í Þór.
„Orðrómarnir voru sannir, við ræddum saman. En það er í fortíðinni þannig ég get ekki hugsað um það. Ég er mjög ánægður að vera hérna með þessum hópi. Þetta er hungraður hópur. Breiðablik er stórt félag á Íslandi en þetta er skemmtileg áskorun. Við höfum ekki spilað í efstu deild í tólf ár, mér finnst þetta skemmtilegra.“
Sebastian Haugland skoraði gullfallegt sigurmark Þórsara! ?????? #bestadeildin pic.twitter.com/VZBnBMcPaZ
— Besta deildin (@bestadeildin) April 23, 2026



