Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjón sem þarf að venjast
Kvenaboltinn
Elísa Viðarsdóttir.
Elísa Viðarsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elísa er vanari því að vera í rauðu.
Elísa er vanari því að vera í rauðu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elísa Viðarsdóttir gekk í raðir Breiðabliks í vetur eftir að hafa leikið með Val í fjöldamörg ár. Hún er goðsögn á Hlíðarenda en núna fer hún yfir í grænt sem er frekar skrítin sjón, allavega eitthvað sem maður þarf að venjast.

Elísa verður í eldlínunni með Breiðabliki í kvöld þegar liðið mætir Þrótti í opnunarleik Bestu deildar kvenna.

„Hún er eins og nýr leikmaður. Hún átti tvö frekar erfið tímabil í Val. Elísa gefur ofboðslega mikið af sér en mér finnst ég vera farinn að þekkja gömlu góðu Elísu inn á vellinum. Hún er öruggari í varnaraðgerðum og er með rosalega góðar sendingar fram á við. Ég er rosalega ánægður að hún hafi ekki hætt. Hún fór í helsta óvininn og ætlar að gera sig gildandi þar," sagði Magnús Haukur Harðarson í Uppbótartímanum.

„Mér finnst þetta frábært að sjá."

Það er í raun hægt að líkja þessu við þegar Rúnar Kristinsson fór úr KR í Fram, eitthvað sem þarf að venjast.

„Þetta sýnir hennar vilja og metnað," bætti Magnús Haukur við um skipti Elísu yfir til Breiðabliks.

Einnig ræddu Agla María Albertsdóttir og Kristín Dís Árnadóttir um skipti Elísu yfir í Breiðablik í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net fyrr í dag.

Hægt er að horfa og hlusta á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan


Slapp
banner
banner