Fotbolti.net
24.05.14 - 10:39
Valur Páll Eiríksson

Gomes til Watford (Staðfest)

Gomes færir sig um set í Lundúnum.

Gomes færir sig um set í Lundúnum.

Canon

Mynd: Getty Images

Markvörðurinn Heurelho Gomes sem rennur út á samningi við Tottenham í sumar gengur til liðs við Watford þegar samningnum lýkur.

Gomes var keyptur til liðsins af Juande Ramos á sínum tíma fyrir 7,8 milljónir punda frá PSV árið 2008. Hann hefur síðan spilað 97 deildarleiki fyrir klúbbinn, þó hefur þeim verulega fækkað síðustu ár.
Gomes var á láni hjá Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni í vetur þar sem hann spilaði 9 leiki.

Hann mun berjast um markvarðarstöðuna við Manuel Almunia hjá Watford næsta vetur, en Almunia er fyrirliði liðsins.

Heimild: Heimasíða Watford

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.