Það fara þrír úrslitaleikir fram á Wembley yfir helgina og verða tveir þeirra sýndir beint hér á landi.
Á sunnudaginn er úrslitaleikur á milli Charlton og Sunderland um sæti í Championship deildinni á næsta tímabili.
Sunderland sló Portsmouth út í undanúrslitum á meðan Charlton hafði betur gegn Doncaster Rovers eftir vítaspyrnukeppni.
Á mánudaginn er svo úrslitaleikur á milli Aston Villa og Derby County um sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Aston Villa komst í úrslit eftir vítaspyrnukeppni gegn nágrönnum sínum í West Bromwich Albion á meðan Derby County kom til baka og vann sögulegan sigur á útivelli gegn Leeds United.
Á laugardaginn fer viðureign Newport County og Tranmere Rovers fram á Wembley.
Laugardagur:
14:00 Newport - Tranmere
Sunnudagur:
14:00 Charlton - Sunderland (Stöð 2 Sport 2)
Mánudagur:
14:00 Aston Villa - Derby (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir