Höskuldur Gunnlaugsson er með áritaða Halmstad BK treyju á lottó uppboði til styrktar Barnaspítalasjóð Hringsins.
Höskuldur kom til Breiðabliks fyrir sumarið og hefur verið einn helsti lykilmaður liðsins á upphafi tímabils, með fimm mörk í átta leikjum í deild og bikar.
Miðinn kostar aðeins 1000 krónur og getur þú nælt þér í hann á vefsíðu CharityShirts.
Vinningshafi verður dreginn út mánudaginn 3. júní kl 19:00 og rennur allur ágóði til Hringsins.
Samtals hafa CharityShirts og leikmenn safnað 1.335.000 til góðgerðarmála.
Athugasemdir