Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 24. maí 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tók sitt eigið líf í íbúð sinni í Belgrad
Mynd: Internetið
Serbinn Miljan Mrdakovic tók sitt eigið líf í fyrradag í íbúð sinni í Belgrad, höfuðborg Serbíu. Miljan fannst látinn í íbúðinni í gær.

Mrdakovic var framherji og lék á sínum ferli með tuttugu félögum í tíu löndum. Alls skoraði hann 180 mörk í öllum keppnum og var í Ólympíuliði Serba árið 2008.

Hann átti sín bestu ár með Apollon Limassol á árunum 2009-11. Þar skoraði hann 21 mark í 31 deildarleik en annars var hann yfirleitt eina leiktíð eða skemur hjá hverju félagi.

Hér að neðan má sjá Instagram-færslu frá reikningi Mrdakovic þar sem hann er ásamt syni sínum.

View this post on Instagram

@mozzartsport ⚽️

A post shared by Miljan Mrdakovic (@miljanmrdakovic) on


Athugasemdir
banner
banner
banner