Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 24. maí 2022 11:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mazraoui til Bayern (Staðfest)
Mynd: EPA
Noussair Mazraoui er formlega genginn í raðir Bayern Munchen frá Ajax. Þetta staðfestir Bayern á samfélagsmiðlum sínum.

Mazraoui er 24 ára hægri bakvörður sem hefur allan aðalliðsferil sinn spilað fyrir Ajax en hann kom upp úr unglingastarfi félagsins.

Hann mun veita Benjamin Pavard, hlutverk sem Bouna Sarr átti að fá í sinn hlut fyrir tveimur árum en hefur ekki tekist að standast væntingar.

Mazraoui er fæddur í Hollandi en spilar fyrir landslið Marokkó. Hann skrifar undir fjögurra ára samning við Bayern.



Athugasemdir
banner
banner