Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 24. maí 2022 19:52
Brynjar Ingi Erluson
Svíþjóð: Lærisveinar Brynjars gerðu markalaust jafntefli
Brynjar Björn Gunnarsson
Brynjar Björn Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sænska B-deildarliðið Örgryte gerði markalaust jafntefli við Östersunds er liðin áttust við á Jämtkraft-leikvanginum í Östersund í dag.

Brynjar Björn Gunnarsson hætti með HK á dögunum og tók við Örgryte en liðið tapaði fyrsta leiknum undir hans stjórn fyrir sex dögum.

Í dag mætti hann svo með liðið gegn Östersund í fallbaráttunni í B-deildinni.

Liðin skildu jöfn, 0-0, og er Östersund áfram fyrir ofan Örgryte í deildinni.

Örgryte situr á botninum með 3 stig en Östersund í næst neðsta sæti með 6 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner