Fotbolti.net
24.05.26 - 22:56
Ívan Guðjón Baldursson

Neitaði að tjá sig um framtíðina: Eigum heima í úrvalsdeild

Neitaði að tjá sig um framtíðina: Eigum heima í úrvalsdeild
Canon

Mynd: EPA

Nuno Espírito Santo þjálfari West Ham var niðurlútur þrátt fyrir flottan sigur í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.
Hamrarnir unnu 3-0 gegn Leeds United en falla niður í Championship deildina eftir að Tottenham vann sinn leik á heimavelli gegn Everton.

„Þetta er mjög erfiður dagur fyrir okkur og sérstaklega fyrir stuðningsmennina. Við vissum að það yrði erfitt að bjarga þessu þar sem þetta var ekki í okkar höndum. Við skiluðum inn okkar og vonuðum það besta. Þetta er döpur stund og við þurfum að hrista þetta af okkur," sagði Nuno eftir lokaflautið.

„Við tókum við erfiðu verkefni hérna og strákarnir lögðu sig fram en það dugði ekki til. Sigurinn í dag sannar fyrir okkur að þetta hefði getað verið öðruvísi, gæðin eru til staðar í þessum leikmannahópi. Það er jákvætt að hafa sigrað með góðri frammistöðu en það breytir því ekki að við finnum fyrir mikilli depurð.

„Við munum þurfa að skoða tímabilið gaumgæfilega til að greina hvað fór úrskeiðis. Það verður erfitt en við munum gera það og mæta tvíefldir til leiks eftir sumarfríið."


Framtíð Nuno er óljós og neitaði þjálfarinn að tjá sig. Hann er samningsbundinn West Ham næstu tvö árin.

„Við erum heppnir að eiga frábæra stuðningsmenn sem hafa staðið þétt við bakið á okkur í gegnum erfiða tíma. Við erum stórt félag sem á heima í úrvalsdeildinni og við munum þurfa á stuðningsmönnunum að halda aftur á næstu leiktíð. Þetta er sárt og vont en þetta er partur af fótboltanum.

„West Ham er félag sem á heima í úrvalsdeildinni, það leikur enginn vafi á því."


England: Palhinha bjargaði Tottenham - West Ham fellur með stæl
TENGT EFNI

England: Palhinha bjargaði Tottenham - West Ham fellur með stæl

Neitaði að tjá sig um framtíðina: Eigum heima í úrvalsdeild
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.