Þýski sóknartengiliðurinn Florian Wirtz svaraði spurningum í viðtali við The Athletic og var meðal annars spurður út í dramatíkina innan herbúða Liverpool vegna ósættis á milli Arne Slot þjálfara og Mohamed Salah stjörnuleikmanns sem er á förum í sumar.
Wirtz segir búningsklefann í Liverpool vera talsvert samheldnari heldur en myndina sem fjölmiðlar hafa málað af stöðunni.
„Utanaðkomandi öfl eru sífellt að reyna að skapa vandamál á milli liðsins og þjálfarans, en staðan er allt öðruvísi á æfingasvæðinu. Við erum að vinna mjög vel saman, leikmennirnir tengja vel við þjálfarateymið og það er mjög gott andrúmsloft á æfingasvæðinu," segir Wirtz.
„Allir hérna standa saman, við stöndum þétt við bakið á þjálfaranum og allt neikvætt umtal á sér stað í fjölmiðlum, ekki á æfingasvæðinu.
„Það eru engin illindi á milli Mo (Salah) og þjálfaranna. Mér líkar hugarfarið hans Mo, hvernig hann sér hlutina og hvernig hann æfir."
Wirtz lá undir mikilli gagnrýni þegar hann kom fyrst til Liverpool í fyrra. Honum mistókst að hafa mikil áhrif á leiki á fyrri hluta tímabils en hrökk í gangi skömmu fyrir áramót.
„Ég þurfti að bæta vöðvamassann og aðlagast þessari deild. Ég er búinn að setja mér stór markmið fyrir næstu leiktíð fyrst þessi leiktíð reyndist vera vonbrigði. Núna snýst allt um að ná þessu Meistaradeildarsæti, svo þurfum við að gera miklu betur á næstu leiktíð. Við erum með mannskapinn í að ná miklu meiri árangri heldur en við gerðum í ár."
Wirtz er í landsliðshópi Þýskalands sem fer á HM í sumar. Hann er 23 ára gamall og á leið á sitt fyrsta heimsmeistaramót.
Liverpool tekur á móti Brentford í lokaleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag.
15.05.2026 23:48
Slot: Fólk vanmetur hvað einn góður gluggi getur gert



