Fotbolti.net
24.06.14 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Alexander Buttner til Dinamo Moskvu (Staðfest)

Alexander Buttner til Dinamo Moskvu (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Dinamo Moskva hefur keypt vinstri bakvörðinn Alexander Buttner frá Manchester United.
Buttner hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Manchester United undanfarin tímabil og eftir að fréttir bárust af því að Luke Shaw sé mögulega á leið til félagsins ákvað Buttner að róa á önnur mið.

Buttner hefur sjálfur sagt að hann hafi verið 14 sinnum maður leiksins undanfarin tvö tímabil hjá Manchester United þrátt fyrir lítinn spiltíma en hann vonast eftir að spila meira hjá Dinamo.

,,Ég vil spila í Meistaradeildinni og vinna titla,\" sagði Buttner eftir að hafa skrifað undir hjá Dinamo Moskvu en liðið mun reyndar leika í Evrópudeildinni á næsta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.