24.06.16 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Niko Kranjcar í Rangers (Staðfest)

Kranjcar er kominn aftur til Bretlands

Mynd: Getty Images

Kranjcar er kominn aftur til Bretlands

Mynd: Getty Images
Króatinn Niko Kranjcar er búinn að finna sér nýtt lið, en hann mun spila með Rangers frá Skotlandi á komandi tímabili.
Hann skrifaði undir tveggja ára samning við þetta gamla stórveldi.
Kranjcar hafði verið samningslaus eftir stutta dvöl hjá New York Cosmos í Bandaríkjunum. Hann er mikill vinur Harry Redknapp og lék hann undir hans stjórn hjá Portsmouth, Tottenham og QPR. Hann var síðast samningsbundinn Dynamo Kyiv í Evrópu.
Hann mun nú vera á leið til Rangers í Skotlandi, en Rangers endurheimti sæti sitt í skosku úrvalsdeildinni á dögunum eftir að hafa verið dæmt niður í D-deild árið 2012 eftir gjaldþrot.
Hjá Rangers hittir hann tvo fyrrum félaga sína hjá QPR, þá Joey Barton og Clint Hill. Hann er sjötti leikmaðurinn sem félagið semur við í sumar.