TalkSport segir að nánast allt sé frágengið varðandi ráðningu Frank Lampard til Chelsea og að hann verði staðfestur á næstu tveimur sólarhringum.
Chelsea er án stjóra eftir að Maurizio Sarri hélt heim til Ítalíu og tók við Juventus.
Lampard er við stjórnvölinn hjá Derby County en á sínu fyrsta tímabili sem stjóri kom hann liðinu í úrslitaleik í umspili Championship, þar tapaði liðið gegn Aston Villa.

Lampard átti blómlegan feril sem leikmaður hjá Chelsea en nokkrir úr starfsliði hans hjá Derby munu fylgja honum, þar á meðal aðstoðarstjórinn Jody Morris sem er einnig fyrrum leikmaður Chelsea.
Æðstu menn Chelsea vilja fá meiri sóknarbolta í Chelsea en undir stjórn Sarri var sendingabolti í aðalhlutverki. Það gekk þó vel því liðið endaði í 3. sæti úrvalsdeildarinnar og vann Evrópudeildina.
Athugasemdir