Sweden W 1 - 0 Canada W
1-0 Stina Blackstenius ('55 )
1-0 Stina Blackstenius ('55 )
Svíþjóð er komið í 8-liða úrslit HM kvenna í Frakklandi eftir 1-0 sigur á Kanada í kvöld.
Það var búist við jafnræði hjá liðunum í kvöld og það var nákvæmlega það sem áhorfendur fengu. Fyrri hálfleikurinn var stál í stál en í byrjun þess síðari kom Stina Blackstenius sænska liðinu yfir.
Þetta var fyrsta færi Svía á markið og skoraði Blackstenius laglegt mark en hún lyfti boltanum yfir markvörð Kanada og í netið.
Kanada fékk vítaspyrnu stuttu síðar en Kosovore Asllani fékk handlék þá knöttinn. Janine Beckie steig á punktinn en Hedvig Lindahl sá við henni í markinu.
Það gerðist stórfurðulegt atvik undir lok leiks en dómari leiksins var búinn að flauta leikinn af og sænsku stelpurnar byrjaðar að fagna þegar það var ákveðið að nota VAR til að athuga hvort ætti að dæma hendi á Svía í lokasókn Kanada. Þeir komust þó að niðurstöðu að ekki var hendi og Svíar því áfram í 8-liða úrslit.
Svíar mæta Þýskaland í 8-liða úrslitum.
Athugasemdir