Enska úrvalsdeildarfélagið Norwich City kynnti í kvöld komu svissneska framherjans Josip Drmic frá Borussia Monchengladbach.
Drmic, sem er 26 ára gamall, hefur spilað með Zurich, Bayer Leverkusen, Hoffenheim og Borussia Monchengladbach á ferlinum en hann á einnig 32 landsleiki að baki fyrir Sviss.
Hann hefur verið afar öflugur í Þýskalandi síðustu ár en hann var að renna út á samning í sumar.
Drmic gerði í kvöld þriggja ára samning við Norwich City en liðið tryggði sæti sitt í ensku úrvalsdeildinni í síðasta mánuði er liðið vann ensku B-deildina.
Norwich ætlar sér stóra hluti í úrvalsdeildinni og verður gaman að fylgjast með þessum öfluga framherja.
Athugasemdir