Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 24. júní 2020 10:01
Magnús Már Einarsson
Arsenal kaupir Pablo Marí og Cedric Soares (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur ákveðið að kaupa varnarmennina Pablo Marí og Cedric Soares en þeir komu báðir til félagsins á láni í janúar.

Marí er 26 ára gamall spænskur miðvörður sem kom á láni frá Flamengo.

Soares er 28 ára gamall portúgalskur bakvörður en hann kom á láni frá Southampton.

Penninn hefur verið á lofti hjá Arsenal í vikunni en David Luiz hefur skrifað undir nýjan eins árs samning.

Þá hefur Dani Ceballos framlengt lánssamninginn sinn frá Real Madrid út tímabilið í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner