Rice og James líklega hvíldir gegn Panama

Declan Rice.

Mynd: EPA

Declan Rice.

Mynd: EPA
Líklegt er talið að miðjumaðurinn Declan Rice og bakvörðurinn Reece James verði báðir hvíldir í síðasta leik Englands í riðlakeppni HM; gegn Panama um komandi helgi.
Athygli vakti að teipað var um vinstri kálfann á Rice þegar hann yfirgaf leikvanginn í Boston eftir markalaust jafntefli gegn Gana.
Samkvæmt heimildum BBC eru meiðslin minniháttar og ekki miklar áhyggjur af því að þau hafi mikil áhrif.

TENGT EFNI
Kallar eftir fimm breytingum á byrjunarliði Englands
James spilaði allan leikinn gegn Gana en hefur verið mikið á meiðslalistanum undanfarin ár og það þarf að huga að álaginu á honum.

Reece James.

Mynd: EPA