Bellamy kominn vel á veg í viðræðum við Burnley

Craig Bellamy.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Craig Bellamy.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Craig Bellamy er í viðræðum um að taka við sem stjóri Burnley og er kominn langt á veg í viðræðum.
BBC sagði frá því 30. apríl að Bellamy væri efstur á óskalista Burnley eftir að Scott Parker var rekinn.
Fyrst virtist sem Bellamy vildi ekki hætta sem landsliðsþjálfari Wales og markmið hans væri að stýra þjóð sinni á EM á 2028. En nú eru miklar líkur á því að hann hætti með velska liðið.

Þessi fyrrum leikmaður Manchester City, Liverpool og West Ham var ráðinn hjá Wales 2024.
Bellamy þekkir Burnley vel en hann var aðstoðarmaður Vincent Kompany þegar hann stýrði liðinu.
Burnley féll úr úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og mun í haust spila í Championship-deildinni.