Maður dagsins á HM - „Sögðu mér að hætta en hér er ég“

Ronaldo með verðlaunin

Mynd: FIFA

Ronaldo með verðlaunin

Mynd: FIFA

Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Cristiano Ronaldo var valinn maður leiksins er Portúgal slátraði Úsbekistan, 5-0, á HM í gær. Hann er fyrsti leikmaðurinn til að skora á sex heimsmeistaramótum.

TENGT EFNI
HM: Ronaldo stimplaði sig inn í stórsigri
Mikið hefur verið rætt og ritað um Ronaldo og þátttöku hans á þessu heimsmeistaramóti.
Hann svaraði gagnrýnisröddunum með tveimur mörkum gegn Úsbekum og var valinn maður leiksins af FIFA.
Ronaldo tjáði sig stuttlega eftir sigurinn og sagðist ekki velta sér upp úr hávaðanum sem kemur utan frá. Hann ætlar sér stóra hluti með portúgalska landsliðinu.
„Þau sögðu mér að hætta, en hér er ég. Hávaðinn að utan er alltaf til staðar en við getum ekki stjórnað honum. Við höldum bara áfram og stöndum saman.“
„Ég veit að Guð hjálpar þeim sem leggja hart að sér. Þetta var erfið vika, mjög myrk, og hún byrjaði eins og ég væri hættur í fótbolta. En ég hélt áfram vegna þess að ég trúi meira á framlagið en sjálfan fótboltann. Ég verð að viðurkenna að þetta var erfitt en við komum til baka,“ sagði Ronaldo.