24.07.13 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Javier Saviola til Olympiakos (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Javier Saviola, fyrrverandi sóknarmaður Barcelona og Real Madrid, er kominn til gríska félagsins Olympiakos.
Saviola er 31 árs gamall argentínskur framherji og var talinn eitt mesta efni knattspyrnuheimsins á sínum tíma.

Eins árs samningur Saviola hjá Malaga rann út 30. júní og nú staðfestir gríska félagið að sóknarmaðurinn sé fluttur austur.
Saviola neitaði samningstilboðum frá uppeldisfélagi sínu í Argentínu, River Plate, og Santos í Brasilíu.
Olympiakos er áttunda félagið sem Saviola spilar með, en sóknarmaðurinn varð frægur þegar hann var keyptur 19 ára til Barca fyrir 15 milljónir punda.
Saviola lék með Sevilla, Monaco, Real Madrid og Benfica áður en hann fór loks til Malaga þar sem hann skoraði 8 mörk í 19 deildarleikjum.

Heimild: Sky Sports