Fotbolti.net
24.07.13 - 21:32
Ívan Guðjón Baldursson

Kevin Gameiro til Sevilla (Staðfest)

Kevin Gameiro til Sevilla (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kevin Gameiro stóðst læknisskoðun hjá Sevilla og skrifar undir samning við Sevilla á morgun.

Gameiro á að fylla í skarð Alvaro Negredo sem fór til Manchester City á dögunum.
Sevilla borgar um 10 milljónir evra fyrir leikmanninn og kemur hann frá frönsku meisturunum PSG.

PSG vildi halda Gameiro til að nota sem varaskeifu en leikmaðurinn vill reyna að brjótast inn í franska landsliðið og taldi sig ekki geta það með Zlatan Ibrahimovic og Edinson Cavani ofar í goggunarröðinni.

Gameiro mun skrifa undir fimm ára samning og eftir undirskriftina flýgur hann líklega beint til Ekvador þar sem liðsfélagar hans eru í æfingaferð og var meðal annars rænt eigum þeirra á hóteli í Medellín, Kólumbíu, að verðmæti yfir 100 þúsund evra.

Heimild: Inside Spanish Football

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.