24.07.13 - 10:28
Magnús Már Einarsson
Tryggvi Guðmunds í HK (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Tryggvi Guðmundsson hefur gengið í raðir HK en hann skrifaði í gær undir samning við félagið sem gildir út tímabilið. Þetta staðfesti Tryggvi í samtali við Fótbolta.net í dag.
Tryggvi yfirgaf herbúðir Fylkis á dögunum og hann var því án félags þegar hann samdi við HK.
HK mætir ÍR í 2. deildinni annað kvöld og Tryggvi mun væntanlega spila sinn fyrsta leik þar.
Tryggvi, sem verður 39 ára í næstu viku, er markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi á Íslandi.
Þá á hann einnig að baki 42 landsleiki en hann skoraði í þeim tólf mörk.