banner
   lau 24. júlí 2021 22:02
Victor Pálsson
Ekki hægt að tala um Haaland í heimsklassa
Mynd: EPA
Það er ekki hægt að segja að framherjinn Erling Haaland sé í heimsklassa að sögn fyrrum leikmanns Dortmund, Jurgen Kohler.

Haaland þykir vera einn af bestu framherjum heims í dag en hann er 21 árs gamall og spilar einmitt með Dortmund.

Öll stærstu lið Evrópu hafa fylgst með leikmanninum síðustu ár en útlit er fyrir að hann spili í Þýskalandi í vetur.

Kohler hefur fulla trú á Norðmanninum en telur þó að hann eigi enn mikið ólært á vellinum.

„Hann er enn ekki leikmaður í heimsklassa. Hann er topp framherji og er með gæðin í að verða það en á eftir að sanna sig," sagði Kohler.

„Hann hefur náð svo langt miðað við 21 árs aldur, það er magnað. Ég er viss um að hann finni tækin svo það sé ekki hægt að stöðva hann. Með reynslu þá kemst hann í heimsklassa."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner