Fotbolti.net
24.07.26 - 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Markmenn frá Grindavík og Serbíu æfa með ÍBV

ÍBV skoðar markmannsmálin.

ÍBV skoðar markmannsmálin.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Eyfjörð Jóhannsson, þriðji markvörður Grindavíkur og markvörður sameinaðs liðs Njarðvíkur/Grindavíkur/Víðis í 2. flokki, æfir þessa dagana í Vestmannaeyjum með ÍBV.

Arnar er fæddur árið 2008 og hefur verið skráður í Grindavík frá 2019 en áður var hann í KA á Akureyri.
ÍBV án varamarkmanns í síðustu leikjum - „Fékk leyfi til að fara heim"
TENGT EFNI

ÍBV án varamarkmanns í síðustu leikjum - „Fékk leyfi til að fara heim"

ÍBV er að skoða markmannsmálin þar sem líklegt þykir að Marcel Zapytowski yfirgefi félagið í sumar. Hann á þó eitt ár eftir af samningi sínum eftir að hafa endursamið í fyrra eftir gott tímabil.

Marcel missti sæti sitt í byrjunarliði ÍBV í byrjun tímabils og Ari í Haraldsstovu Petersen, lánsmaður frá KÍ Klaksvík, hefur staðið vaktina í meirihluta leikjanna á tímabilinu.

Fótbolti.net heyrði þá einnig af því að serbneskur markvörður hefði æft með ÍBV. Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, er frá Serbíu.
Marcel er orðaður í burtu.

Marcel er orðaður í burtu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.