Fotbolti.net
24.07.26 - 09:53
Elvar Geir Magnússon

Bamba í Newcastle (Staðfest)

Bamba á St Jame's Park.

Bamba á St Jame's Park.

Canon

Mynd: Newcastle

Newcastle United hefur staðfest kaup á miðjumanninum tvítuga Aladji Bamba frá Mónakó fyrir um 34 milljónir punda.

„Ég varð mjög spenntur þegar ég heyrði að Newcastle hefði áhuga á að fá mig," segir þessi tvítugi Frakki sem lék sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir ári síðan.

Newcastle seldi Sandro Tonali til Tottenham í síðasta mánuði og Bamba er annar ungi miðjumaðurinn sem félagið kaupir í sumar, á eftir Sean Steur (18 ára) sem kom frá Ajax. Newcastle hefur breytt um áherslur og reynir að sækja yngri leikmenn.

Ef rýnt er í tölfræði Bamba frá síðasta tímabili þá var hann í topp fimm í frönsku deildinni yfir návígi unnin, tæklingar og skallaeinvígi unnin af miðjumönnum sem léku að minnsta kosti 500 mínútur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.