Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 24. ágúst 2019 21:16
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu mörkin: Glæsimark Gary sem enginn fagnaði
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gary Martin skoraði eina mark ÍBV í 2-1 tapi gegn ÍA í dag. Markið var glæsilegt en enginn fagnaði því, hvorki leikmenn né áhorfendur.

Eftir að Gary skoraði þá lyfti hann höndunum upp til að sýna að hann ætlaði ekki að fagna gegn sínu fyrrum félagi.

ÍA er félagið sem fékk hann til Íslands og var hann á Skaganum í tvö og hálft ár áður en KR fékk hann yfir til sín. Hjá ÍA skoraði hann 23 mörk í 38 leikjum.

Hér fyrir neðan er hægt að sá myndband af öllum mörkum leiksins. Markið hans Gary kemur eftir rétt tæpar 2 mínútur af myndbandinu.

ÍBV féll úr Pepsi Max-deildinni með tapinu og var Gary sársvekktur á Twitter eftir leikinn.


Athugasemdir
banner
banner
banner