24.08.20 - 20:13
Aksentije Milisic
Aron Þórður til Fram (Staðfest)

Aron í leik gegn Þór á dögunum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron í leik gegn Þór á dögunum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram hefur fengið Aron Þórð Albertsson til liðsins á ný en hann kemur frá Þrótti Reykjavík. Þetta tilkynnti félagið á Facebook síðu sinni í dag.
Aron hefur leikið 11 leiki með Þrótti í sumar en hann er fæddur árið 1996. Aron kom til Þróttar frá HK árið 2016 en þar á undan lék hann með Fram.
Aron á 26 leiki að baki í efstu deild á Íslandi og hefur hann skorað í þeim þrjú mörk. Þá hefur hann spilað 78 leiki í næst efstu deild og gert í þeim sex mörk.
Fram hefur spilað vel í sumar og er liðið í mikilli toppbaráttu. Þegar mótið er hálfnað er liðið í öðru sæti, með jafn mörg stig og topplið Keflavíkur.