24.08.21 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Southampton krækir í yngsta leikmann í sögu Everton (Staðfest)

Thierry Small.

Mynd: Getty Images

Thierry Small.

Mynd: Getty Images
Southampton hefur gengið frá kaupum á Thierry Small, ungum leikmanni sem kemur frá Everton.
Small varð í janúar á þessu ári yngsti leikmaðurinn til að spila aðalliðsleik fyrir Everton.
Hann var aðeins 16 ára og 176 daga gamall þegar hann spilaði í 3-0 bikarsigri gegn Sheffield Wednesday. Hann bætti met Jose Baxter með því að koma inn á.
Núna hefur þessi 17 ára gamli vinstri bakvörður yfirgefið herbúðir Everton og samið við Dýrlingana.
Þessi leikmaður þykir frambærilegur en hann kemur til með að fá fleiri tækifæri í aðalliði Southampton. Samkvæmt The Athletic þá höfðu Aston Villa, Leeds United, Chelsea og fleiri félög í Evrópu áhuga á honum en hann valdi að fara í Southampton.