Vældi sig inn í teiginn, sló gamla markametið og er að spila sinn besta bolta á ferlinum

Verið frábær í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skallaði boltann í netið.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Aukaspyrnumarkinu fagnað.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Skoraði þriðja markið sitt með þessu skoti.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þrennan innsigluð.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KA menn passa upp á boltana.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Sigurður Breki átti frábæran leik í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Verið frábær í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron hefur nú skorað 20 mörk í Bestu deildinni og er langmarkahæsti leikmaður deildarinnar. Hann ræddi við Fótbolta.net í dag.
Þrenna í gær, sú fyrsta í Bestu með KR, er þetta fyrsta þrennan í keppnisleik á ferlinum?
„Nei, þetta var ekki fyrsta þrennan á ferlinum, en tilfinningin að skora mína fyrstu þrennu fyrir KR er bara mjög góð. Ég var búinn að hóta því helvíti oft en loksins kom hún!" segir Aron glaður.
Hann hafði tíu sinnum skorað tvennu í Bestu deildinni með KR fyrir gærdaginn og tvisvar í bikarnum.
Kitlar að slá gamla metið og stefnir á met gamla liðsfélagans
Með þrennunni er hann kominn með 20 mörk í deildinni og hefur slegið gamla 19 marka markametið.
Er einhver sérstök tilfinning sem fylgir því og næst á dagskrá er væntanlega að bæta met gamla liðsfélagans Benonýs Breka Andréssonar, eða hvað?
„Jájá, það kitlar alveg pínu að vera markahæstur í venjulegri deildarkeppni frá upphafi, ég viðurkenni það alveg. Næst á dagskrá er að slá metið hjá Benó í núverandi fyrirkomulagi, það er hárrétt hjá þér!"
Benoný Breki skoraði 21 mark með KR 2024 og var í kjölfarið seldur til Stockport á Englandi.
Leyfir leiknum að koma til sín
Hvernig leið þér á vellinum og komandi inn í leikinn, finnur þú á þér þegar það er markadagur framundan?
„Mér leið bara vel fyrir leik, við vorum vel undirbúnir og alltaf gaman að ferðast með strákunum í svona leiki. Nei, ég finn ekkert á mér fyrir leiki, ég reyni bara að fara inn með tóman haus og leyfi þessu að koma til mín."
Náði að væla sig inn í teiginn
Skallamarkið er uppáhaldsmark Arons af mörkum gærdagsins.
„Ég hef alltaf verið tilbúinn að taka stutt horn í undanförnum leikjum, en ég náði núna að væla mig inn í teig í hornum og það var helvíti ljúft að ná að skora eftir að hafa vælt mig inn í teiginn."
„Þetta er þriðja skalla markið mitt í sumar, það er örugglega meira en ég hef skorað með skalla síðustu 10 árin."
Fékk ekki að taka boltann með sér
Það er hefð fyrir því að leikmenn fái að taka með sér boltann sem spilað var með þegar þeir skora þrennu. Mundir þú eftir boltanum?
„Nei, ég verð að græja annan bolta. Leikmenn KA fá sekt ef bolti týnist þannig ég mátti ekki taka hann með mér heim."
„Það getur allt gerst í þessu"
Þrjú stig og þið haldið áfram smá pressu á Víkingum, hvernig líst þér á toppslaginn eftir viku? Átta stig og sjö umferðir eftir, er raunhæft að ná þeim?
„Það getur allt gerst í þessu, þetta verður stór og spennandi leikur við Víkinga á þriðjudaginn. Ætli við sláum ekki enn eitt vallarmetið í sumar, en við erum bara spenntir og gíraðir fyrir þann leik!"
Gaman að spila með Sigga Breka í gær
Sigurður Breki kom inn í liðið í gær og lagði upp þrjú mörk, hversu öflugt er að fá þessa frammistöðu?
„Hann var bara að jafna sig á höfuðhöggi fyrr í sumar og það tók sinn toll, en Siggi Breki er bara fáránlega góður leikmaður og gaman að spila með honum í gær, maður hefur séð þetta 100 sinnum á æfingum og frábært að hann sé að bæta þessu inn í leikina hjá sér."
Með besta þjálfarann í deildinni og meðvitaður um ábyrgðina
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, hrósaði Aroni í viðtali við Vísi eftir leikinn í gær. Hann sagði eftirfarandi:
„Hann er auðvitað bara frábær leikmaður, ég vil samt fá meira frá honum. Mér finnst hann verða að taka betri ákvarðanir oft á tíðum, hann þarf að einfalda leiki stundum. Stundum leitar hann eftir erfiðu sendingunni í staðinn fyrir að gera hlutina einfalt þannig ég væri til í að sjá hann bæta sig þar. Auðvitað er hann frábær leikmaður, þegar hann er farinn að skora með skalla á nærstöng eftir hornspyrnu þá veistu að það er eitthvað gott að gerast."
„Þetta er bara mikilvægasti leikmaður okkar og fyrirliði og maðurinn sem að keyrir þetta áfram. Ég óska einskis heitar en að hann slái þetta markamet en við þurfum bara alltaf að muna í grunninn er þetta liðsíþrótt og við gætum stundum gert hlutina aðeins einfaldari en frábær leikmaður, meiriháttar gaman að þjálfa hann og yndisleg persóna," sagði Óskar við Árna Gísla Magnússon.
Aron var spurður út í ummælin varðandi að einfalda leik sinn. Er hann sammála Óskari?
„Já, ég er í þessu til að verða betri og ég er með besta þjálfara á landinu að leiðbeina mér og þetta er hárrétt hjá honum. Ég er mikið með boltann og er stór partur að spilið okkar tikki vel. Þá verð ég að taka betri ákvarðanir með boltann því að lið treysta mikið á skyndisóknir á móti okkur," segir Aron.
Aldrei notið þess meira að spila fótbolta
Hversu nálægt því ertu í dag að spila þinn besta fótbolta á ferlinum?
„Ég hef allavega aldrei notið þess eins mikið að spila fótbolta og núna, og jú ætli þetta sé ekki bara minn besti fótbolti á ferlinum. Það hentar mér ágætlega að spila boltann sem KR spilar," segir Aron að lokum.

Skallaði boltann í netið.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Aukaspyrnumarkinu fagnað.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Skoraði þriðja markið sitt með þessu skoti.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þrennan innsigluð.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KA menn passa upp á boltana.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Sigurður Breki átti frábæran leik í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
