Fotbolti.net
24.09.14 - 12:23
Magnús Már Einarsson

Hlynur Svan hættur sem þjálfari Breiðabliks (Staðfest)

Hlynur Svan Eiríksson.

Hlynur Svan Eiríksson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Hlynur Svan Eiríksson er hættur sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Breiðabliki en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

Breiðablik mun enda í 2. sæti í deildinni í sumar en það er ljóst þrátt fyrir að ein umferð sé eftir í deildinni. Hlynur mun stýra Blikum í lokaumferðinni gegn ÍBV á laugardag.
Fréttatilkynning Breiðabliks
Stjórn knattspyrnudeildar Breiðabliks og Hlynur Svan Eiríksson hafa komist að samkomulagi um að ljúka samstarfinu í meistaraflokki kvenna hjá félaginu. Þetta var sameiginleg niðurstaða og nú, að henni fenginni, er leit að eftirmanni Hlyns hafin.

Knattspyrnudeild Breiðabliks þakkar Hlyni fyrir góð störf fyrir félagið. Undir hans stjórn varð Breiðablik bikarmeistari á síðustu leiktíð og hreppti annað sætið í Pepsí deild kvenna í ár.

Hlynur Svan þakkar jafnframt knattspyrnudeildinni fyrir það tækifæri sem hann fékk og þeim flotta hópi Breiðablikskvenna sem hann þjálfaði fyrir samstarfið. Hlynur óskar liðinu velfarnaðar í framtíðinni.

Stjórn Knattspyrnudeildar Breiðabliks og Hlynur Svan Eiríksson
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.