Fotbolti.net
24.09.14 - 23:54
Magnús Már Einarsson

Luka Kostic tekur við Haukum (Staðfest)

Þórhallur Dan Jóhannsson og Luka Kostic.

Þórhallur Dan Jóhannsson og Luka Kostic.

Canon

Mynd: Haukar

Luka Kostic hefur verið ráðinn þjálfari Hauka en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu í kvöld. Hann tekur við af Sigurbirni Hreiðarssyni sem hætti á dögunum.

Þórhallur Dan Jóhannsson fyrrum leikmaður Hauka verður aðstoðarþjálfari meistaraflokks.

Luka hefur þjálfað yngri flokka hjá Haukum undanfarin ár en í sumar var hann þjálfari hjá 2. flokki félagsins. Luka stýrði síðast meistaraflokki árið 2010 þegar hann var þjálfari Grindvíkinga.

Á dögunum kom Luka inn í þjálfarateymi Vals en hann mun klára tímabilið með liðinu í Pepsi-deildinni.
Fréttatilkynning í Haukum
Haukar gengu í dag frá ráðningu Luka Kostic sem þjálfara meistaraflokks karla í knattspyrnu til næstu þriggja ára. Luka Kostic hefur undanfarin ár þjálfað yngri flokka Hauka með góðum árangri.

Hann þekkir því vel til á Ásvöllum og vænta Haukar mikils af honum við þjálfun meistaraflokks félagsins. Þá hefur Þórhallur Dan Jóhannsson verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks, en hann hefur starfað við hlið Luka við þjálfun yngri flokka félagsins undanfarin ár. Kristján Ómar Björnsson verður áfram í þjálfarateymi félagsins og mun sjá um styrktarþjálfun leikmanna.

Luka Kostic og Þórhallur Dan taka við þjálfun liðsins af Sigurbirni Erni Hreiðarssyni og Matthíasi Guðmundssyni. Haukar þakkar þeim félögum góð störf í þágu félagsins og óska þeim velfarnaðar í framtíðinni.

f.h. Knattspyrnudeildar Hauka

Jón Erlendsson, formaður knattspyrnudeildar
Luka Kostic.

Luka Kostic.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.