Fotbolti.net
24.09.14 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson

Slade hættur með Leyton Orient (Staðfest)

Líklegur arftaki Ole Gunnar Solskjær hjá Cardiff

Russell Slade tekur eflaust við Cardiff City á næstunni.

Russell Slade tekur eflaust við Cardiff City á næstunni.

Canon

Mynd: Getty Images

Russell Slade, knattspyrnustjóri Leyton Orient, er búinn að afhenda uppsagnarbréf sitt og ætlar sér að taka við Cardiff City.

Leyton Orient er í þriðju efstu deild á Englandi en Cardiff, þar sem Aron Einar Gunnarsson er mikilvægur byrjunarliðsmaður, er deild ofar.
Cardiff var í Úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en Norðmanninum Ole Gunnar Solskjær tókst ekki að halda liðinu uppi og var rekinn eftir slæma byrjun á þessu tímabili.

,,Stjórnendur Leyton Orient hafa fengið í hendurnar uppsagnarbréf frá Russell Slade,\" stendur í yfirlýsingu frá félaginu.

,,Þetta er ekki tilviljanakennd uppsögn þar sem félagið hafnaði beiðni Cardiff City um að fá knattspyrnustjórann yfir til sín fyrr í dag.

,,Lögmenn félagsins eru að skoða bréfið.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.