Alex Þór Hauksson, fyrirliði Stjörnunnar, skoraði fallegt mark fyrir Stjörnuna í Pepsi Max-deildinni í kvöld.
Stjarnan mætti Breiðabliki og var mark Alex það fyrsta í leiknum. Það dugði hins vegar ekki því heimamenn náðu að snúa leiknum við og vinna hann 2-1.
„VÁ ALEX ÞÓR TAKE A BOW!!!!!! Þvert gegn gangi leiksins. Jósef rennir honum út á Alex sem að fær tíma 30 metrum frá markinu og hann þakkar pent fyrir sig og smyr honum í samskeytin. Geggjað mark," skrifaði Kristófer Jónsson í textalýsingu sinni þegar Alex Þór skoraði.
Stöð 2 Sport birti myndband af markinu á Twitter en það má sjá hér að neðan.
Textalýsinguna frá leiknum á Kópavogsvelli má lesa í heild sinni hérna.
Ruglað mark hjá @AlexHauksson í kvöld. Það dugði þó ekki til fyrir @FCStjarnan. pic.twitter.com/ybjLfLzvmB
— Stöð 2 Sport (@St2Sport) September 24, 2020
Athugasemdir