Fotbolti.net
24.09.26 - 17:15
Elvar Geir Magnússon

Dæmdi hjá Juventus á sunnudag og dæmir U21 leik Íslands á Þróttarvelli á morgun

Ítalski dómarinn Luca Zufferli dæmir U21 landsleik Íslands í Laugardalnum á morgun.

Ítalski dómarinn Luca Zufferli dæmir U21 landsleik Íslands í Laugardalnum á morgun.

Canon

Mynd: EPA

Eimskip
U21 landslið Íslands mætir jafnöldrum sínum frá Frakklandi á morgun klukkan 15:00 en leikurinn verður á heimavelli Þróttar, Pepsi-vellinum, í Laugardalnum.

Með fullri virðingu fyrir þeim fína velli þá var dómari leiksins, Luca Zufferli, að störfum á öllu flottari velli síðasta sunnudag þegar hann dæmdi 2-0 sigurleik Juventus gegn Atalanta á Allianz vellinum í Tórínó.

Dómarar U21 landsleiksins á morgun koma frá Ítalíu og dæma í ítölsku A-deildinni. Zufferli hefur dæmt stóra leiki í þeirri deild. Aðstoðardómarar hans verða Giuseppe Perrotti og Khaled Bahri. Fjórði dómari verður Daniele Perenzoni.
Serbar dæma landsleik Íslands og Eistlands
A-landslið Íslands tekur á móti Eistlandi á Laugardalsvelli klukkan 16 á laugardag en þá hefja strákarnir okkar leik í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Svo koma leikir gegn Lúxemborg úti og Búlgaríu heima. Glugganum lýkur á öðrum leik við Eistland, þá á útivelli.

Ísland er í 74. sæti á styrkleikalista FIFA en Eistland í 127. sæti.

Serbneskir dómarar sjá um að dæma leikinn á laugardag. Aðaldómarinn heitir Milos Milanovic og er fæddur 1993. Hann hefur dæmt leiki í efstu deild í Serbíu síðan 2022.

Milan Pasajlic og Svetozar Zivin verða aðstoðardómarar á leiknum og Milan Ilic fjórði dómari. VAR myndbandsdómari er Aleksandar Zivkovic og VAR aðstoðardómari Pavle Tomic.
VAR skjár á Laugardalsvelli.

VAR skjár á Laugardalsvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.