Fotbolti.net
24.10.13 - 20:09
Magnús Már Einarsson

Lárus Orri ráðinn aðstoðarþjálfari Þórs (Staðfest)

Lárus Orri Sigurðsson.

Lárus Orri Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Lárus Orri Sigurðsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Þórs en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í kvöld.

Lárus Orri hætti á dögunum sem þjálfari KF eftir þriggja ára starf hjá félaginu.

Hann er öllum hnútum kunnugur hjá Þór eftir að hafa leikið hjá félaginu og verið þjálfari frá 2006 til vorsins 2010 þegar hann sagði upp.
Lárus Orri sagði upp í lok maí 2010 eftir að hafa hótað uppsögn í eftirminnilegu viðtali á Fótbolta.net tveimur vikum áður.

Páll Viðar Gíslason tók við Þórsurum af Lárusi eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari hans og kom Þórsurum upp í Pepsi-deildina um haustið. Lárus mun síðan núna vera aðstoðarmaður Páls næsta sumar.

Lárus Orri kemur inn fyrir Halldór Ómar Áskelsson og Hrein Hringsson sem hafa verið aðstoðarmenn Páls Viðars undanfarið.

Heimild: Heimasíða Þórs

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.