Fotbolti.net
24.10.13 - 20:08
Magnús Már Einarsson

Sandor Matus í Þór (Staðfest)

Sandor Matus.

Sandor Matus.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ungverski markvörðurinn Sandor Matus hefur gengið í raðir Þórs en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í kvöld.
Sandor hefur varið mark KA frá því árið 2004 en á dögunum varð ljóst að hann yrði ekki áfram hjá félaginu þar sem hinn ungi og efnilegi Fannar Hafsteinsson mun standa á milli stanganna þar næsta sumar.

Í kjölfarið hefur þessi 36 ára gamli reynslubolti gengið til liðs við nágrannana í Þór

,,Það er besti kosturinn fyrir mig. Konan mín er komin 37 vikur á leið og ég á hús á Akureyri. Krakkarnir mínir eru í skóla og leikskóla hér og ég vil spila áfram í tvö til þrjú ár í viðbót hér áður en ég flyt kannski til Reykjavíkur til að sinna markmannsþjálfun,\" sagði Sandor við Fótbolta.net fyrr í dag.

Joshua Wicks og Srdjan Rajkovic vörðu mark Þórs í sumar en þeir fengu báðir sinn skammt af gagnrýni fyrir frammistöðu sína.

Á dögunum var greint frá því að Wicks muni ekki leika áfram með Þór og óvíst er með Rajkovic en samningur hans rennur út um áramót. .

Heimild: Heimasíða Þórs

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.