Fotbolti.net
24.10.15 - 19:35
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Cannavaro tekinn við sádí-arabísku meisturunum (Staðfest)

Cannavaro fetur sín fyrstu þjálfaraskref í Asíu.

Cannavaro fetur sín fyrstu þjálfaraskref í Asíu.

Canon

Mynd: Getty Images

Fabio Cannavaro er búinn að skrifa undir átta mánaða samning við Al-Nasr í Sádí-Arabíu.

Al-Nasr eru ríkjandi deildarmeistarar en hafa ekki byrjað tímabilið sérlega vel og eru um miðja deild með fimm stig eftir fjórar umferðir.
Cannavaro hefur reynslu í miðausturlöndunum eftir að hafa leikið 16 leiki fyrir Al-Ahli. Hann varð heimsmeistari með Ítalíu og kjörinn besti leikmaður í heimi árið 2006 og fór til Al-Ahli fjórum árum síðar.

Cannavaro tók við Al-Ahli og gerði að meisturum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Cannavaro tók svo við Guangzhou Evergrande en var látinn fara eftir hálft ár og fékk Luiz Felipe Scolari starfið.

Cannavaro var sterklega orðaður við aðstoðarþjálfarastöðuna hjá Real Madrid en Fernando Hierro, sem er í guðatölu hjá stuðningsmönnum Real, var ráðinn að lokum.

Heimild: Football Italia

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.