Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 24. október 2020 16:51
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir dagsins: Cancelo og Zaha langbestir
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Tveimur fyrstu úrvalsdeildarleikjum dagsins er lokið og hefur Sky Sports gefið leikmönnum einkunnir.

Portúgalski bakvörðurinn Joao Cancelo skilaði inn bestu frammistöðunni og fékk 9 fyrir sinn þátt í 1-1 jafntefli Manchester City gegn West Ham.

Cancelo átti frábæran leik og lagði upp jöfnunarmark Phil Foden með frábærum spretti upp vinstri vænginn.

Enginn í liði Man City komst nálægt Cancelo í einkunnagjöfinni að undanskildum Foden, sem byrjaði á bekknum en kom inn í hálfleik fyrir Sergio Aguero.

Þrír leikmenn Hamranna fengu hins vegar 8 í einkunn, Lukasz Fabianski á milli stanganna og miðjumennirnir Declan Rice og Tomas Soucek.

West Ham: Fabianski (8), Cresswell (7), Balbuena (7), Ogbonna (6), Masuaku (7), Rice (8), Soucek (8), Coufal (7), Fornals (6), Bowen (6), Antonio (7)
Varamenn: Yarmolenko (5), Haller (6)

Man City: Ederson (7), Walker (7), Dias (7), Garcia (6), Cancelo (9), Gundogan (6), Rodrigo (6), Silva (6), Sterling (7), Aguero (6), Mahrez (7)
Varamenn: Zinchenko (6), De Bruyne (7), Foden (8)



Fulham tapaði þá gegn Crystal Palace og var Aboubakar Kamara verstur á vellinum en hann fékk 4 í einkunn. Kamara kom inn á 66. mínútu og fékk rautt spjald tuttugu mínútum síðar fyrir ljótt og klaufalegt á Eberechi Eze, snöggum kantmanni Palace.

Wilfried Zaha var besti maður vallarins með 9 í einkunn og voru þrír samherjar hans sem fengu áttur. Scott Dann, Cheikhou Kouyate og Jairo Riedewald.

Fulham: Areola (6), Aina (6), Adarabioyo (6), Ream (6), Robinson (7), Lemina (7), Zambo (6), Cairney (7), Loftus-Cheek (6), Lookman (7), Mitrovic (6).
Varamenn: Reid (6), Kamara (4).

Crystal Palace: Guaita (7), Clyne (7), Dann (8), Kouyate (8), Mitchell (7), Townsend (7), Milivojevic (7), Riedewald (8), Schlupp (7), Batshuayi (7), Zaha (9).
Varamenn: van Aanholt (6), Eze (6).
Athugasemdir
banner
banner
banner