Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 24. október 2021 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lingard svaraði stuðningsmanni: Er ekki einu sinni inn á vellinum
Jesse Lingard.
Jesse Lingard.
Mynd: EPA
Jesse Lingard, leikmaður Manchester United, var á meðal varamanna þegar liðið tapaði á niðurlægjandi hátt gegn erkifjendunum í Liverpool fyrr í dag, 0-5.

Lingard kom ekki við sögu, en hann fór að hita upp á ákveðnum tímapunkti.

Er hann var að hita upp þá sást hann svara stuðningsmanni sem sagði eitthvað við hann.

Margir veltu því fyrir sér hvað stuðningsmaðurinn hefði sagt við Lingard, en enski landsliðsmaðurinn uppljóstraði um það á samfélagsmiðlum eftir leik.

„Hann var ekkert að láta mig heyra það! Hann sagði við mig að ég ætti að leggja meira á mig - eins og ég sé ekki að gera það á hverjum degi - og ég sagði við hann að ég væri ekki einu sinni inn á vellinum," skrifaði Lingard á Twitter.

Samskiptin voru ekki meiri en það, en myndband má sjá hér fyrir neðan.



Athugasemdir
banner
banner