Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 24. nóvember 2021 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sanches kveðst vera tilbúinn í næsta skref
Renato Sanches.
Renato Sanches.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Renato Sanches kveðst vera tilbúinn að yfirgefa herbúðir Lille í janúar.

Sanches hefur náð ferli sínum aftur á flug í Frakklandi eftir erfiða tíma hjá Bayern München í Þýskalandi. Hann stóð sig líka illa á láni hjá Swansea í ensku úrvalsdeildinni.

Hann er búinn að standa sig vel með Lille og er eftirsóttur af stærri félögum. Sanches segist tilbúinn að taka næsta skref.

„Þegar ég fór fyrst til Bayern, þá var ég ekki tilbúinn að spila í það stóru félagi. Ég var mjög ungur... í dag er ég tilbúinn. Ég skil fótbolta betur, ég er með meiri reynslu."

Sanches hefur meðal annars verið orðaður við AC Milan, Arsenal og Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner