24.12.13 - 20:20
Brynjar Ingi Erluson
Clint Dempsey lánaður til Fulham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Bandaríski landsliðsmaðurinn Clint Dempsey hefur gert tveggja mánaða lánssamning við enska úrvalsdeildarfélagið Fulham en félagið greinir frá þessu á heimasíðu sinni í kvöld.
Dempsey, sem er 30 ára gamall, snýr því aftur í enska boltann en hann samdi við Seattle Sounders í sumar eftir eitt ár hjá Tottenham Hotspur.
Þessi öflugi leikmaður lék með Fulham lengi vel en hann spilaði þar 225 leiki og skoraði 60 mörk áður en hann samdi við Tottenham sumarið 2012.
Hann kemur til með að styrkja Fulham afar mikið en félagið skipti um stjóra á dögunum er Martin Jol var látinn taka poka sinn og er það nú í umsjá Rene Meulensteen að halda liðinu í efstu deild.