Fotbolti.net
24.12.15 - 08:00
Magnús Már Einarsson

Gunnar Örvar semur við félag á Ítalíu (Staðfest)

Gunnar Örvar Stefánsson.

Gunnar Örvar Stefánsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Gunnar Örvar Stefánsson, framherji Þórs, hefur samið við Vado FC í ítölsku D-deildinni en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net.

Ítalskur umboðsmaður hafði samband við Gunnar Örvar og bauð honum að fara út og skoða aðstæður hjá Vado.

Gunnar Örvar skrifaði í kjölfarið við samning við Vado sem gildir út tímabilið eða fram á sumar.
„Ég fýlaði þetta vel og þetta ætti að geta verið fínasti stökkpallur heyrist mér,\" sagði Gunnar Örvar við Fótbolta.net í gær.

Gunnar Örvar er 21 árs gamall en hann er uppalinn hjá KA.

Eftir dvöl í Noregi í fyrravetur gekk Gunnar Örvar til liðs við Þór þar sem hann skoraði fimm mörk í 1. deildinni í sumar.

Vado er sem stendur í 17. sæti af 20 liðum í A-riðli í Serie D. Tvö neðstu liðin þar falla en liðin í sæti 15-18 fara í umspil um fall.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.