Fotbolti.net
24.12.15 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Norwich kaupir Matt Jarvis (Staðfest)

Matt Jarvis er genginn til liðs við Norwich

Matt Jarvis er genginn til liðs við Norwich

Canon

Mynd: Getty Images

Norwich er búið að staðfesta kaup á Matt Jarvis frá West Ham, en kaupverðið er talið nema 2,5 milljónum punda.

Hinn 29 ára gamli Jarvis skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við kanarífuglana, en samningurinn tekur gildi þann 2 janúar, þegar félagsskiptaglugginn opnar.
Jarvis hefur verið í láni hjá Norwich á tímabilinu og hefur hann skorað tvisvar í sjö leikum.

\"Ég hef virkilega notið tímans hér og ég er því mjög ánægður með að hafa skrifað undir þennan samning,\" sagði Jarvis.

\"Það er gott að vera búinn með þetta áður en glugginn opnar, því félagið sýndi að það vildi virkilega fá mig.\"

Delighted to have signed a permanent deal @NorwichCityFC can't wait to get back playing and helping the team soon!

— Matt Jarvis (@MrMattJarvis) December 24, 2015

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.