Fotbolti.net
25.01.13 - 23:11
Brynjar Ingi Erluson

Emmanuel Frimpong lánaður til Fulham (Staðfest)

Emmanuel Frimpong

Emmanuel Frimpong

Canon

Mynd: Getty Images

Emmanuel Frimpong, leikmaður Arsenal á Englandi, hefur gert lánssamning við Fulham út tímabilið, en hann staðfesti þetta á samskiptavef Twitter í kvöld.
Frimpong, sem er 21 árs gamall, hefur fallið ansi aftarlega í goggunarröðinni hjá Arsenal, en liðið er án Mikel Arteta og Francis Coquelin á morgun, en fyrir eru þeir Jack Wilshere, Abou Diaby, Aaron Ramsey og Thomas Rosicky á undan Frimpong í röðinni.

Hann var á sex vikna láni hjá Charlton Athletic fyrr á leiktíðinni, en sneri aftur í janúar og er strax farinn aftur á lán, en hann hefur gert lánssamning við Fulham út tímabilið, til þess að eiga möguleika á fleiri tækifærum.

Martin Jol, stjóri Fulham, hefur ólmur viljað styrkja miðsvæðið hjá Fulham og ákvað hann því að fá Frimpong til sín, en hann er einnig að reyna að fá Tom Huddlestone frá Tottenham Hotspur.

,,Síðasta færslan í dag. Gangi leikmönnum Fulham og starfsmönnum félagsins vel á morgun í bikarnum og vonandi náum við í jákvæð úrslit. Þetta hefur verið langur dagur, en ég vil þakka Charles Collymore, umboðsmanni mínum, fyrir að vera til staðar í dag og að klára félagaskipti mín til Fulham. Nú byrjar erfiðið,\" sagði Frimpong á Twitter.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.